Forsætisráðherra sitji ekki lengur en í tíu ár 27. maí 2011 09:00 Stjórnlagaráð smíðar nú mikinn bálk í stjórnarskrána um auðlindir og umhverfisvernd. Mynd/GVA
Stjórnlagaráð hefur lagt til róttækar breytingar á stjórnarskrárákvæðum um ríkisstjórnina og ekki síst starf og skipan forsætisráðherra. Ef breytingarnar verða að veruleika getur forsætisráðherra ekki setið lengur en í tíu ár, eða tvö og hálft kjörtímabil. Það er B-nefnd ráðsins sem lagði tillögurnar fram til kynningar á tíunda fundi ráðsins í gær. Í þeim eru ýmis nýmæli. Til dæmis er lagt til að það verði ekki lengur hlutverk forsetans að skipa ráðherra, heldur muni Alþingi kjósa forsætisráðherra og hann skipaður formlega af forseta þingsins. Forsætisráðherrann hefði síðan sjálfur formlegt skipunarvald í sína ríkisstjórn. Samkvæmt tillögunni yrði það þingforsetans að bera upp tillögu um forsætisráðherra eftir samráð við þingflokka. Yrði tillögu hans hafnað skyldi hann bera upp aðra tillögu, en væri tillögum hans hafnað í fjórgang þyrfti að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. „Verður að ætla að sú tilhögun skapi sterkan hvata fyrir þingið að koma sér saman um forsætisráðherra,“ segir í skýringu B-nefndar. Tillagan um tíu ára hámarkssetu forsætisráðherra í embætti er rökstudd með því að valdþreyta geri vart við sig með tímanum, menn „staðni í embættum og hvatar til nýjunga og endurnýjunar slævist.“ Tíu ára markið var málamiðlun á milli þeirra sem vildu takmarka setuna annars vegar við átta ár og hins vegar við tólf ár. Einnig var rætt að takmarka tímann sem aðrir ráðherrar gætu setið í embætti en slík tillaga hefur ekki komið fram. Ekki var hins vegar almennur vilji fyrir að takmarka setutíma þingmanna. Þá er lagt til að þingmenn geti lagt fram vantrauststillögu á alla ráðherra, en vantrauststillögu á forsætisráðherra verði þó að fylgja tillaga um eftirmann sem tæki við ef vantraust yrði samþykkt og myndaði þá nýja ríkisstjórn. A-nefnd ráðsins lagði einnig fram tillögur til kynningar á fundinum um breytingar á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Helstu tíðindin þar eru ákvæði um eignarrétt þjóðarinnar á náttúruauðlindum til lands og sjávar, náttúru- og dýravernd og skylda hins opinbera til að halda almenningi upplýstum um áhrif framkvæmda á umhverfið og tryggja að almenningur geti tekið þátt í undirbúningi slíkra ákvarðana. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira