Innlent

Fyrstu ferðamennirnir eftir gos komu í gær

Frá Skaftafelli í fyrradag. Myndina tók Klaus Kretzer.
Frá Skaftafelli í fyrradag. Myndina tók Klaus Kretzer.
Skaftafell, suðurhluti Vatnajökulsþjóðgarðs, opnaði aftur í gær einungis tveimur dögum eftir að öskufalli á svæðinu lauk.

 

Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður segir að svæðið hafi verið rýmt eftir að gosið hófst á laugardagskvöldið. Hreinsunarstarf hafi síðan hafist í fyrradag. Það hafi gengið hratt og vel fyrir sig. Hún segir að fyrstu ferðamennirnir eftir gos hafi komið í Skaftafell í gær.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×