Innlent

Hundruð milljóna króna ekki nýttar

Reyna á að ná samningum við tannlækna um tannviðgerðir barna. Um 200 til 400 milljónir króna hafa verið afgangs á undanförnum árum af þeirri fjárhæð sem ætluð er til endurgreiðslu tannlæknareikninga.
Reyna á að ná samningum við tannlækna um tannviðgerðir barna. Um 200 til 400 milljónir króna hafa verið afgangs á undanförnum árum af þeirri fjárhæð sem ætluð er til endurgreiðslu tannlæknareikninga. Mynd/Vilhelm
Undanfarin ár hefur afgangur af fjárlögum sem nota má til endurgreiðslu tannlæknareikninga numið um 200 til 400 milljónum króna á ári þar sem endurgreiðsluskrá Sjúkratrygginga Íslands hefur ekki hækkað samhliða hækkun á fjárlögum. Afgangurinn safnast ekki upp, að því er Steingrímur Ari Arason forstjóri greinir frá.  „Þessar fjárhæðir fara í hítina. Þegar tryggingarnar í heild eru gerðar upp er kostnaðurinn orðinn meiri en áætlað var.“

 

Steingrímur segir stöðuna orðna óviðunandi. „Það hafa ekki náðst samningar við tannlækna og ég þykist vita að menn hafi óttast að yrði endurgreiðslugjaldskráin hækkuð einhliða myndi það fyrst og fremst leiða til þess að tannlæknar hækkuðu verðið hjá sér þannig að sjúklingar nytu þá ekki góðs af. Nú hafa menn hins vegar einsett sér að horfa til barna og reyna að ná samningum um tannviðgerðir þeirra en halda hinum hópunum, öldruðum og öryrkjum, í óbreyttu kerfi til þess að byrja með.“

 

Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir tannlækna hafa gert athugasemdir vegna þessa mikla afgangs við yfirvöld í mörg ár. „Samkvæmt lögum á að veita þessum fjármunum til fólksins í landinu en kerfið nær ekki að klára þetta. Við höfum rætt þetta við landlækni, umboðsmann barna, stjórnmálamenn og heilbrigðisráðherra. Nú fá börn endurgreitt 75 prósent af ráðherragjaldskrá. Við bentum á að ef þau fengju 100 prósenta endurgreiðslu væri það leið til þess að klára afganginn en það þótti ómögulegt.“

 

Það er mat Sigurðar að praktískar ástæður séu fyrir því að ekki hafi fengist nógu margir tannlæknar til þess að taka þátt í átaksverkefninu um gjaldfrjálsar tannviðgerðir fyrir börn tekjulágra foreldra sem standa á yfir í sumar.

 

„Menn skilja ekki stofuna sína eftir verkefnalausa. Það kostar að reka hana og greiða laun. Sjálfur er ég til dæmis bókaður einn til tvo mánuði fram í tímann. Þetta er öðruvísi en átakið sem við áttum frumkvæði að fyrir tveimur árum til þess að vekja athygli á vandamáli sem við vorum búin að horfa á í mörg ár. Þá unnum við á laugardögum og tókum ekkert gjald fyrir. Það er leiðinlegt að menn haldi að við séum að skemma fyrir þessu átaki því að viljum sannarlega leysa þetta, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land.“

 

ibs@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×