Samfylkingin siðar fulltrúa sína 28. maí 2011 06:15 Framkvæmdastjórn flokksins vill vanda til mannaráðninga í stjórnsýslunni. Mynd/Vilhelm
Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar leggur til að sett verði á laggirnar svokölluð siða- og sáttanefnd innan flokksins, sem eigi að hafa það hlutverk að fylgjast með því hvort flokksmenn, kjörnir fulltrúar og forystumenn víki frá stefnu flokksins með gjörðum sínum og taki að öðru leyti á erfiðum málum innan hans. Þetta er meðal tillagna sem framkvæmdastjórnin hefur unnið upp úr starfi umbótanefndar flokksins, sem skilaði af sér skýrslu í desember síðastliðnum. Fréttablaðið hefur tillögurnar undir höndum, en þær verða kynntar á flokksstjórnarfundi nú um helgina. Einnig er lagt til að nefnd verði falið að smíða siðareglur fyrir kjörna fulltrúa flokksins, þar sem kveðið verði á um skuldbindingu við grunngildi og samþykkta stefnu flokksins og vandaða stjórnsýsluhætti, svo sem við mannaráðningar. Tillögurnar snúa að miklu leyti að innra starfi flokksins, fundahöldum, nefndastarfi og félagslífi. Einn kaflinn fjallar um styrkjamál flokksins og einstakra flokksmanna. Framkvæmdastjórnin tekur undir það með umbótanefndinni að brýn nauðsyn sé að setja skýrar og þröngar reglur um fjármál flokksins og fjáröflun prófkjörsframbjóðenda. Umbótanefndin lagði til að Samfylkingin bannaði auglýsingar í prófkjörsbaráttu og beitti sér einnig fyrir því að kosningaauglýsingar stjórnmálaflokka í ljósvakamiðlum yrðu bannaðar. Í umsögn framkvæmdastjórnar segir að mikil eining hafi verið um bann við prófkjörsauglýsingum, en ekki um hið síðarnefnda. Framkvæmdastjórnin vísar svo hvoru tveggja í nefnd. - sh
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira