Innlent

Gunnar tali við vini sína

Guðríður Arnardóttir formaður bæjarráðs segir fyrrverandi bæjarstjóra geta fengið upplýsingar hjá flokksfélögum sínum.
Guðríður Arnardóttir formaður bæjarráðs segir fyrrverandi bæjarstjóra geta fengið upplýsingar hjá flokksfélögum sínum.
„Ég bendi Gunnari vinsamlega á að spyrja vini sína í Sjálfstæðisflokknum um þetta mál enda fór allur undirbúningur þess fram á valdatíma fyrri meirihluta í bæjarstjórn,“ bókaði Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, á síðasta fundi ráðsins.

 

Tilefnið var að Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, lagði til að endurskoðunarfyrirtækið Deloitte færi yfir ferli við gerð heimasíðu og kostnað vegna hennar. Meirihluti bæjarráðs felldi tillögu Gunnars með fyrrgreindri athugasemd bæjarráðsformannsins. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×