Banvænu agúrkurnar ekki fluttar til Íslands 30. maí 2011 03:30 Níu hafa látist í Þýskalandi og um þrjú hundruð hafa veikst eftir að hafa borðað sýktar agúrkur. mynd/ap F06290511 agúrkur
Lífrænar agúrkur hafa verið afturkallaðar úr verslunum í Austurríki og í Tékklandi af ótta við útbreiðslu bakteríu sem hefur banað að minnsta kosti níu manns og valdið veikindum hundraða manna víðs vegar um Evrópu. Í Þýskalandi hafa níu látist og um þrjú hundruð veikst vegna HUS-bakteríunnar, sem er sjaldgæft afbrigði E.coli-bakteríu. Í Svíþjóð hafa um tíu manns þurft að fara á sjúkrahús undanfarnar tvær vikur eftir að hafa ferðast til Þýskalands. Í Danmörku hafa átta manns farið á sjúkrahús með E.coli-sýkingu sem gæti tengst þessari nýju bakteríu. Hún hefur einnig greinst í Bretlandi og í Hollandi. Eggert Árni Gíslason, framkvæmdastjóri Mata ehf., segir að alltaf sé eitthvað um að fyrirtækið flytji inn agúrkur þó svo að stærstur hluti sé íslenskur. Undanfarið hafa þær erlendu eingöngu komið frá Hollandi en það hefur þó gerst að spænskar agúrkur hafi verið fluttar til Íslands. „Íslendingar hafa flutt inn agúrkur á veturna frá Spáni en það hefur verið í mjög litlu magni," segir Eggert Árni og bætir við að þær hafi ekki verið lífrænar eins og þær sem sýktust á Spáni. Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri Banana ehf., segir fyrirtækið stöku sinnum flytja inn agúrkur frá Hollandi. „Það eru eiginlega allar gúrkur íslenskar. Ef þær skyldu vera erlendar eru þær hollenskar. Það gerist stundum ef það er ekki næg uppskera hér heima og þá er það á veturna," segir Kjartan Már, sem telur að íslenskir agúrkuneytendur þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur. Talsmaður Evrópusambandsins segir að rekja megi HUS-bakteríuna til tveggja gróðurhúsa á Spáni sem hafi nú hætt starfsemi. Verið er að rannsaka hvort veiran eigi uppruna sinn í vatninu eða jarðveginum á svæðinu. Niðurstöður úr þeim rannsóknum eru væntanlegar á allra næstu dögum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Báru eld að miðstöð fyrir flóttafólk Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Sjá meira