Útboð byggingar nýs fangelsis að bresta á 1. júní 2011 06:30 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir hagkvæmara að nýtt fangelsi verði reist með opinberri framkvæmd. Mynd/Stefán Karlsson
Útboð byggingar nýs fangelsis er að bresta á, að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Málið er á dagskrá ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag. „Það þýðir vonandi að við fáum niðurstöðu í málið, ekki síðar en á þriðjudag,“ segir innanríkisráðherra. „Það er einhugur um að bjóða út fangelsið. Það sem hefur verið til umræðu er í hvaða formi útboðið eigi að vera, hvort þetta eigi að vera opinber framkvæmd eða einkaframkvæmd. Það er mjög brýnt að útboð nýs fangelsis komist á rekspöl hið allra fyrsta. Það hefur tafist um nokkrar vikur að hefja útboðið enda ekki hristir fram úr erminni tveir milljarðar sem áætlað er að fangelsið kosti.“ Ráðherra útskýrir að þegar hann hafi komið að málinu hafi hugmyndin verið sú að bjóða fangelsið út í einkaframkvæmd, nokkuð sem hann hafi rakið til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og þeirrar hugmyndafræði sem hann stendur fyrir. „Nú heyri ég að hann sé ekki að setja þessa kröfu fram nema þá óbeint í kröfunni um að ná hallalausum fjárlögum sem fyrst. Slíkt væri þó bara bókhaldsatriði því ef við reisum fangelsi þá borgar ríkið hverja einustu krónu framkvæmdarinnar hvort sem það er einkaframkvæmd eða opinber framkvæmd. Einkaframkvæmd þýðir að ríkið felur einkaaðila að reisa fangelsið og leigir það síðan af honum. Það er dýrari kostur og við hljótum að gera það sem er ódýrast og hagkvæmast.“- jss
Mest lesið Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Innlent Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Innlent Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Erlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum Innlent Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Fleiri fréttir Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Sjá meira