Innlent

Fjögur aðildarfélög BSRB náð samningi

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir að hreyfing hafi komið á samingaviðræður opinberra starfsmanna eftir að ASÍ og SA náðu saman. Mynd/Bára Kristinsdottir
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir að hreyfing hafi komið á samingaviðræður opinberra starfsmanna eftir að ASÍ og SA náðu saman. Mynd/Bára Kristinsdottir
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir viðræður vegna kjarasamninga ganga vel og hafa fjögur aðildarfélög bandalagsins náð samkomulagi við viðsemjendur sína á síðustu dögum.

 

Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, og SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu, skrifuðu undir samninga við ríkið og Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga, samdi við samninganefnd sveitarfélaga. Þá sömdu flugumferðastjórar við Isavia og aflýstu með því öllum verkfallsaðgerðum, en þar hafði verið yfirvinnubann í gildi um nokkra hríð.

 

Þrír fyrstnefndu samningarnir eru á svipuðum nótum og stóru samningarnir sem tókust milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Um það bil helmingurinn af vinnumarkaðinum féll undir þá samninga og Elín Björg segir að með þeim hafi hlutirnir farið að hreyfast.

 

„Um leið og þeir voru frágengnir fóru steinarnir að losna úr stíflunni og nú er kominn góður skriður á þessi mál."

 

Hún bætti því við að bréf sem BSRB barst nýlega frá ríkisstjórninni, þar sem tíunduð var afstaða stjórnvalda gagnvart kjarasamningum opinberra starfsmanna, hafi einnig liðkað fyrir samningsferlinu. Þar var meðal annars lögð áhersla á að eyða kynbundnum launamun og vinna í lífeyrissjóðsmálum.

Elín Björg telur að dregið geti til tíðinda á næstunni, en þó sé ekki enn farið að sjá fyrir endann á samningahrinunni. „Enn eiga 23 félög eftir að semja og þar af eru sum félög með marga samninga, þannig að það er mikið eftir enn. Það er hins vegar góður gangur á þessu og ásetningur til að landa samningum," segir Elín.

Magnús Pétursson
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari segir í samtali við Fréttablaðið að mikill erill sé í húsakynnum hans þessa dagana. Þar voru til dæmis fulltrúar Starfsgreinasambandsins, SFR, BHM og hjúkrunarfræðingar við samninga í gær. Samiðn og Rafiðnaðarsamband Íslands náðu saman í gær.

 

„Þetta er að vinnast ágætlega og það er fullt í öllum okkar sölum og rúmlega það þessa dagana." Magnús segir þó að margt sé enn óunnið enda séu liðlega 300 kjarasamningar í landinu.

 

„En þessu miðar öllu vel og það er hugur í fólki að halda áfram."

thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×