Innlent

Orri Haukssson nýr formaður

Orri Hauksson
Orri Hauksson
Orri Hauksson var kjörinn stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins á ársfundi sjóðsins á þriðjudag og tekur við embætti af Arnari Sigurmundssyni. Guðný Hrund Karlsdóttir var kjörin varaformaður.

Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að hann var rekinn með 16 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Í árslok 2010 námu heildareignir sjóðsins rúmlega 4,8 milljörðum króna. Fjárfesting sjóðsins á árinu var um 700 milljónir króna.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×