Innlent

Spá mesta samdrætti í 35 ár

Mest dregur úr umferð á Suðurlandi.  Mynd/Anton
Mest dregur úr umferð á Suðurlandi. Mynd/Anton
Umferðin í maí 2011 á sextán völdum talningarstöðum á Hringveginum var tíu prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum nemur samdrátturinn tæpum níu prósentum. Þetta er gífurlega mikill samdráttur í sögulegu samhengi, að sögn Vegagerðarinnar.

 

Miðað við spá Vegagerðarinnar stefnir á þessu ári í metsamdrátt síðan 1975, þrisvar sinnum meiri en hann hefur orðið mestur milli ára. Mest dregur úr umferð á Suðurlandi, um tæplega 20 prósent, en minnst á Hringveginum í grennd við og um höfuðborgarsvæðið, um 4,5 prósent.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×