Innlent

Ríkisstjórnin sögð beita Alþingi ofbeldi

Þingstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur var gagnrýnd á þingi í gær og beðið um frestun ýmissa mála. Þá lá Jón Bjarnason undir ámæli fyrir að leggja fram frumvörp tæpum tveimur mánuðum eftir að frestur til þess rann út.fréttablaðið/Anton
Þingstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur var gagnrýnd á þingi í gær og beðið um frestun ýmissa mála. Þá lá Jón Bjarnason undir ámæli fyrir að leggja fram frumvörp tæpum tveimur mánuðum eftir að frestur til þess rann út.fréttablaðið/Anton
Hörð gagnrýni kom fram á starfshætti Alþingis við umræður í gær. Gagnrýnin var nokkuð kunnugleg; allt of mörg mikilvæg mál kæmu of seint fram og ætlast væri til þess að þingmenn afgreiddu þau í flýti. Athygli vakti að stjórnarþingmaður tók undir gagnrýnina.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hófu gagnrýnina. Ragnheiður gagnrýndi að þingfundur hæfist á meðan sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd væri enn að störfum, en þar var fjallað um kvótafrumvarpið hið minna. Sigurður á sæti í nefndinni og hann sakaði framkvæmdarvaldið um ofbeldi gagnvart Alþingi.

Ríkisstjórnin liti á þingið sem afgreiðslustofnun. Undir þessa gagnrýni tóku fleiri stjórnarandstæðingar og sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, allt tal um vandaðri vinnubrögð þingsins vera öfugmæli og hræsni.

Stjórnarandstæðingar tiltóku sérstaklega frumvörp sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun, enda hefðu þau komið á dagskrá Alþingis um það bil tveimur mánuðum eftir að framlagningarfrestur var úti.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þetta brjóta gegn markmiðum sem þingið setti sér síðast þegar gerðar voru breytingar á reglum um störf þingsins. „Það má ekki verða fordæmi að ríkisstjórnin komist upp með að leggja fram frumvörp tveimur mánuðum eftir framlagningarfrest og knýja þingstörf áfram fram á sumar.“

Athygli vakti að Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði þessa gagnrýni réttmæta, þó ekki endilega vegna kvótafrumvarpsins.

Valgerður sagði að taka þyrfti starfshætti þingsins til endurskoðunar. Fjöldi mikilvægra mála fengi að fljóta í gegn á síðustu dögum þingsins og þingmenn hefðu hvorki tíma né ráðrúm til að leggjast yfir þau. Þetta hefði viðgengist árum saman.

„Við ætluðum að breyta þessu en höfum ekkert gert. Nú er kjörtímabilið hálfnað og ég skora á framkvæmdarvaldið að koma með mál fyrr inn í þingið til að við höfum tíma til að gaumgæfa þau,“ sagði Valgerður.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×