Innlent

Stakk konu tvisvar í höfuð

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, sem dæmdi hana í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot.

Konan var meðal annars dæmd fyrir að stinga aðra konu tvívegis í höfuðið með eldhúshnífi í fyrra. Fórnarlambið hlaut tvo skurði á höfði og kúlu á hnakka. Þá var konan jafnframt dæmd fyrir að kveikja í fataskáp í klefa samfanga síns í febrúar á þessu ári með þeim afleiðingum að fatnaður og önnur verðmæti eyðilögðust. Loks var hún dæmd fyrir þjófnað úr fataverslun.- jss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×