Innlent

Vöruþurrð um borð hjá Iceland Express

Breska flugfélagið Astreus sem flýgur fyrir Iceland Express hefur verstu tölfræði allra félaga hvað varðar seinkanir á Keflavíkurflugvelli.
Breska flugfélagið Astreus sem flýgur fyrir Iceland Express hefur verstu tölfræði allra félaga hvað varðar seinkanir á Keflavíkurflugvelli.
Matthías Imsland
Farþegar Iceland Express í júní hafa orðið varir við að úrvalið af mat og öðrum vörum um borð er fremur fátæklegt miðað við það sem vaninn hefur verið.

Farþegi í nýlegu flugi Iceland Express til Barcelona segir Fréttablaðinu að á leiðinni út hafi ekki verið hægt að kaupa léttvín, sterk vín eða þá bjórtegund sem auglýst var á tilboði. Vatn hafi verið ófáanlegt á flöskum þótt það hafi verið í boði úr vatnsdunkum sem flugfreyjur hafi haft hjá sér. Þegar haldið hafi verið heim fimm dögum síðar hafi sölubæklingurinn hreinlega verið horfinn úr vélinni. Hefðbundin söluvarningur hafi ekki verið á boðstólum.

Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir skýringuna einfalda. Félagið hafi stofnað sitt eigið þjónustufyrirtæki á Keflavíkurflugvelli eftir að slitnaði upp úr samstarfi við fyrri þjónustuaðila. Koma þurfi upp lager og þjálfa þurfi upp starfsfólk og þá sem komi inn með vörur.

„Fyrstu fimmtán dagana í júní höfum við þurft að taka vörur erlendis vegna þess að það var ekki komið endanlegt samþykki fyrir okkar eigin lager. Við höfum verið að pikka upp breskt gos og spænskt gos og vatn. Það hefur ekki verið neinn skortur á því þótt það séu ekki þær vörur sem við höfum auglýst. Við höfum heldur ekki verið að ota að fólki skartgripum og slíku,“ segir Matthías.

Hann útskýrir að langan tíma hafi tekið að fara í gegnum leyfisferlið. „Það dróst að fá öll leyfi en þetta er loksins að gerast núna þannig að þetta ætti að vera með eðlilegum hætti frá og með morgundeginum [deginum í dag].“

Fyrirtækið sem þjónustaði Iceland Express í Keflavík þar til um síðustu mánaðamót er Airport Associates ehf. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sagði félagið upp Iceland Express-samningnum fyrir þremur og hálfum mánuði. Borið var við viðvarandi seinkunum á áætlun félagins. Þær hefðu sérstaklega keyrt um þverbak eftir að Iceland Express hefði hafið tengiflug til Ameríku fyrir rúmu ári.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×