Erlent

Segir mótmæli skemmdarverk

Bashar Assad
Bashar Assad
Bashar Assad Sýrlandsforseti segist geta hugsað sér lýðræðislegar umbætur í landinu, sem jafnvel fælust í að Baath-flokkur hans afsalaði sér einveldi sínu í stjórnmálum.

Hins vegar sakar hann skemmdarverkamenn um að notfæra sér ástandið og segist ekki til viðræðu við þá sem beri vopn og drepi fólk.

Stjórnarandstæðingar segja sjónvarpsávarp hans í gær, þar sem hann lét þessi orð falla, einskis virði. Á máli hans hafi ekki mátt heyra nein áþreifanleg merki um að lýðræðisumbætur verði gerðar.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×