Innlent

SFR semur við Fríhöfnina

Atkvæðagreiðslu um nýjan samning lýkur klukkan 11 hinn 5. júlí.
Atkvæðagreiðslu um nýjan samning lýkur klukkan 11 hinn 5. júlí. Mynd/Pjetur
Samninganefndir SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu og Fríhafnarinnar skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær. Hann er á svipuðum nótum og þeir samningar sem stéttarfélagið hefur gert að undanförnu.

Kjarasamningurinn framlengist til 31. janúar 2014 og felur í sér krónutölu- eða prósentuhækkanir, eftir því hvað gagnast félagsmönnum betur. Eftir á að greiða atkvæði um samninginn.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×