Fjórar erlendar hljómsveitir koma fram á rokkhátíðinni Eistnaflugi sem verður haldin í Neskaupstað dagana 7. til 9. júlí.
Þær heita Triptykon frá Sviss, The Monolith Deathcult frá Hollandi, Secrets of the Moon frá Þýskalandi og hin færeyska Hamferð. Á meðal íslenskra hljómsveita sem stíga á svið eru Ham, Dr. Spock, Sólstafir, Mammút, SH Draumur og Skálmöld auk Eiríks Haukssonar.

