Innlent

Skemmtistaðir opnir lengur

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að leyfa skemmtistöðum að hafa lengri opnunartíma um verslunarmannahelgina.

Bæjarráðið fékk beiðni frá Vinum Akureyrar um að opnunartíminn yrði lengdur. Nú mega skemmtistaðirnir vera opnir til klukkan þrjú aðfaranótt föstudags, til klukkan fimm aðfaranótt laugardags og sunnudags og til klukkan fjögur aðfaranótt mánudags.

Þá veitti bæjarráðið leyfi fyrir áfengislausri skemmtun sextán ára og eldri á laugardagskvöldinu til klukkan þrjú. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×