Innlent

Kirkjan vill ábendingar

Nefnd vegna kynferðisbrota innan kirkjunnar býður öllum sem vilja koma athugasemdum, tillögum eða erindum á framfæri að hafa samband við sig.

Nefndin var kosin á aukakirkjuþingi og á að undirbúa tillögur til úrbóta varðandi forvarnir og viðbrögð vegna kynferðisbrota. Nefndin tekur sérstaklega mið af tillögum sem voru settar fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings. Þá verður sérfræðiaðstoðar leitað.

Tillögurnar verða lagðar fyrir næsta kirkjuþing í haust. Í nefndinni sitja fimm kirkjuþingsfulltrúar. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×