Viðskipti erlent

Skuldaskrímslið étur framtíð okkar

Giulio Tremonti
Giulio Tremonti
„Án fjárlagajafnvægis myndi skuldaskrímslið, sem kemur úr fortíðinni, éta upp framtíð okkar og framtíð barnanna okkar,“ sagði Giulio Tremonti, fjármálaráðherra Ítalíu, þegar hann ávarpaði þingheim í gær.

Öldungadeild ítalska þjóðþingsins samþykkti aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar í gær en neðri deild þingsins greiðir atkvæði um þær í dag.

Aðhaldspakkinn hljóðar upp á 70 milljarða evra, eða nærri 12.000 milljarða króna. Þrýstingur frá fjármálamörkuðum, sem treysta ekki lengur ítölskum skuldabréfum, varð til þess að stjórnin bæði hraðaði afgreiðslu aðhaldspakkans og hækkaði sparnaðarupphæðina verulega.

Ítalía skuldar nú nærri 120 prósent af landsframleiðslu sinni, og nálgast þar með Grikkland sem skuldar nærri 150 prósent.

Komist Ítalía í þrot, eins og Grikkland gerði, verður varla mögulegt fyrir Evrópusambandið að koma henni til bjargar, því Ítalía er þriðja stærsta hagkerfi ESB og skuldabyrðin því miklu meiri í fjárhæðum talið en hjá Grikklandi, sem er afar lítið hagkerfi á mælikvarða ESB.

Ítalir skulda nú 1.800 milljarða evra, sem væri miklu stærri biti að kyngja en þeir 300 milljarðar evra sem Grikkir skulda.- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×