Erlent

Deilur harðna um skuldaþak

Átakafundur Obama á fundi með leiðtogum þingsins.fréttablaðið/AP
Átakafundur Obama á fundi með leiðtogum þingsins.fréttablaðið/AP
Aukin harka hefur færst í deilur bandarískra þingmanna um skuldaþak bandaríska ríkisins. Fokreiðir þingmenn hafa gagnrýnt bæði hver annan og Barack Obama Bandaríkjaforseta.

Fjármálafyrirtækin á Wall Street auka enn á hitann með því að segja það hafa skelfilegar afleiðingar ef repúblikönum og demókrötum tekst ekki að ná samkomulagi um að hækka skuldaþak Bandaríkjanna, svo ríkið geti staðið undir afborgunum af skuldum sem eru að gjaldfalla.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×