Innlent

Fíkniefnahvolpar í hæsta gæðaflokki

MÆÐGURFíkniefnahundurinn Ella í leik með dóttur sinni Clarissu. Sú síðarnefnda er á leiðinni til Steinars Gunnarssonar yfirhundaþjálfara.
MÆÐGURFíkniefnahundurinn Ella í leik með dóttur sinni Clarissu. Sú síðarnefnda er á leiðinni til Steinars Gunnarssonar yfirhundaþjálfara.
„Þessi tilraun heppnaðist framar öllum vonum. Ég er búinn að þjálfa þrjá hvolpanna og er að byrja með þann fjórða. Þessir hvolpar standast hæstu gæðakröfur.“

Þetta segir Steinar Gunnarsson, yfirhundaþjálfari embættis ríkislögreglustjóra, um hvolpa fíkniefnahundanna Ellu og Nelsons, sem Fréttablaðið greindi frá í gær. Ákveðið var að para hundinn og tíkina, sem bæði eru innflutt, til að freista þess að fá nothæfa fíkniefnahunda undan þeim. Steinar segir tilraunina hafa heppnast svo vel að líkja megi hvolpunum við lottóvinning. Með þessu sparist að minnsta kosti tíu milljónir króna þar sem innfluttir hundar séu mjög dýrir.

Þrír eða fjórir unghundanna verða notaðir hjá lögreglu, tveir hjá tollgæslunni og einn fær Fangelsismálastofnun.

„Við prófuðum unghundana á útihátíðum um síðustu helgi. Á Eistnaflugshátíðinni komu upp 29 fíkniefnamál.

Hundurinn sem við fórum með þangað átti þau flest. Á Bestu útihátíðina fórum við með þrjá hunda og þeir skiluðu stórum hluta fíkniefnamálanna. Meðal hundanna var hundur Fangelsismálastofnunar, sem hefur hlotið nafnið Vinkill. Hann fór alveg á kostum.“

Steinar segir mjög strangar kröfur gerðar til unghundanna og gríðarlega vinnu lagða í þá. Ríkislögreglustjóri vilji reka metnaðarfullt starf hvað alla þætti varði. Mjög góð samvinna sé milli lögreglu, Fangelsismálastofnunar og tollgæslu um þjálfun hundanna sem og öll önnur verkefni.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×