Innlent

Veggjöld verða sett á eða olíuverð hækkað

Bensínverð Hátt bensínverð er komið til að vera standist spár starfshóps sem skilað hefur af sér skýrslu um hækkun olíuverðs.	Fréttablaðið/valli
Bensínverð Hátt bensínverð er komið til að vera standist spár starfshóps sem skilað hefur af sér skýrslu um hækkun olíuverðs. Fréttablaðið/valli
Núverandi gjaldtaka af olíu stendur ekki undir vegakerfi landsins. Uppsafnaður halli síðustu ára er 6 milljarðar króna. Í fjármálaráðuneytinu er nú hugað að því hvernig auka megi tekjur af umferð. Allt kemur til greina í þeim efnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins: hærri gjöld, að breyta því hlutfalli bensínverðs sem rennur til ríkissjóðs og vegtollar.

Starfshópur um möguleg viðbrögð stjórnvalda vegna hækkandi olíuverðs skilaði af sér skýrslu í gær. Helsta niðurstaða hópsins er að hátt eldsneytisverð sé langtímavandamál sem verði ekki leyst með skammtímaaðgerðum svo sem tímabundinni lækkun á álögum.

Fjármálaráðherra skipaði starfshóp í mars síðastliðnum sem gera átti grein fyrir mögulegum viðbrögðum stjórnvalda við olíuverðshækkunum. Formaður hópsins var Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Auk hans sátu í nefndinni fulltrúar frá iðnaðar-, efnahags- og viðskipta-, innanríkis- og umhverfisráðuneyti.

„Það virðist vera sameiginlegt mat flestra að olíuverð komi til með að hækka á næstu árum og áratugum. Því teljum við að þetta háa eldsneytisverð sem við höfum verið að sjá sé ekki tímabundin þróun,“ segir Huginn og bætir við: „Við höfum því talið farsælast að stjórnvöld leiti að langtímalausnum eins og gert hefur verið í olíukreppum á fyrri árum.“

Fyrir mati nefndarinnar á því að olíuverð sé líklegt til að hækka áfram eru færðar helst fjórar röksemdir. Má þar nefna að þær tekjur sem eyrnamerktar eru samgöngumálum og fást með vörugjaldi á olíu séu ekki nægar til að standa undir vexti og viðhaldi samgöngukerfisins.

Í skýrslunni segir einnig að Ísland þurfi líkt og önnur ríki að bregðast við hækkandi eldsneytisverði með því að draga úr vægi jarðefnaeldsneytis í samgöngum. Settar eru fram tillögur í þá átt og má þar nefna meiri notkun almennissamgangna og strandsiglinga en nú og innleiðingu frekari skattalegra hvata til að fólk leiti fremur í nýja orkugjafa.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur kallað eftir lækkun á álögum hins opinbera á olíu. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir tillögurnar rýrar.

„Þessi skýrsla kemur í raun ekki með margt nýtt í umræðuna. Niðurstöðurnar eru mjög svipaðar því sem fjármálaráðherra ræddi um þegar stofnun starfshópsins var kynnt,“ segir Runólfur og bætir við: „Það er löngu búið að taka ákvörðun um að gera ekkert og þá er miklu hreinna og beinna að segja það frekar en að setja það í umgjörð einhvers starfshóps. Við köllum sem fyrr á aðgerðir til að lækka bensínverð.“

kolbeinn@frettabladid.is

magnusl@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×