Innlent

Samþykki breytingar innan sex vikna

Skilja verður á milli samfélagslegra og viðskiptalegra þátta Íbúðalánasjóðs samkvæmt kröfu ESA. Stofnunin hefur stytt þann frest sem stjórnvöld höfðu til tillagna um breytingar.
Skilja verður á milli samfélagslegra og viðskiptalegra þátta Íbúðalánasjóðs samkvæmt kröfu ESA. Stofnunin hefur stytt þann frest sem stjórnvöld höfðu til tillagna um breytingar. Mynd/Vilhelm
Guðbjartur Hannesson.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum tillögur um hvernig Íbúðalánasjóði verði breytt til að laga hann að reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð. Stofnunin hafði áður veitt stjórnvöldum frest til andsvara, en hann virðist nú hafa verið styttur.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segist ekki skilja hvers vegna þessar tillögur komi nú. Stjórnvöld hafi haft frest fram til nóvember til að leggja fram áætlun um hvernig Íbúðalánasjóði yrði breytt. Hann segir þetta koma sér mjög á óvart. „Við þurfum að sjá hvað liggur að baki þessu, hvað hefur breyst."

Athugasemdir stofnunarinnar byggja á dómi EFTA-dómstólsins frá 2006. Þar segir að íslenskum stjórnvöldum beri að skilgreina betur hlutverk Íbúðalánasjóðs í almannaþjónustu. Tryggja þurfi betur að ríkisaðstoð sú sem sjóðurinn nýtur sé aðeins nýtt til almannaþjónustu, ekki starfsemi af viðskiptalegum toga. Með öðrum orðum, að skilja þurfi betur á milli samkeppnislegra og félagslegra þátta.

„Við þurfum að skoða betur hvernig ríkisábyrgðirnar eru og hvernig sjóðurinn fellur undir eftirlitskerfið í samanburði við banka og annað. Við höfum ýtt þessu á undan okkur á meðan við sjáum hvernig samfélagið endurreisir sig eftir bankahrunið," segir Guðbjartur.

Eftirlitsstofnunin leggur til að þak verði sett á verð og stærð þess húsnæðis sem Íbúðalánasjóður lánar til. Með þessu á að koma í veg fyrir að ívilnanir tengdar félagslegri þjónustu komi viðskiptahluta starfseminnar til góða.

Guðbjartur segir að málið verði skoðað og á því fundin lausn. Mikilvægt sé að viðhalda félagslegu húsnæðiskerfi. „Mikilvægi sjóðsins hefur aukist ef eitthvað er að undanförnu."

Málinu er lokið af hálfu ESA samþykki íslensk stjórnvöld tillögurnar innan sex vikna. Að öðrum kosti kann að fara svo að stofnunin hefji formlega rannsókn á grundvelli aðfinnsla sinna.

Guðbjartur segir að krafa um sex vikna frest núna komi sér á óvart.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×