Innlent

Fullir fá aðra meðferð á bráðavakt

Yfirlæknirinn á Vogi segir vandamál að ekki sé litið á áfengissýki sem alvörusjúkdóm og því sé lítið fé sett í forvarnir og meðferð.
Fréttablaðið/Valli
Yfirlæknirinn á Vogi segir vandamál að ekki sé litið á áfengissýki sem alvörusjúkdóm og því sé lítið fé sett í forvarnir og meðferð. Fréttablaðið/Valli
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir fyrirhugaða rannsókn á tengslum áfengissýki og dánarmeina afar mikilvæga. Persónuvernd hafnar að leyfa rannsóknina þar til betur liggur fyrir hvernig tryggja eigi öryggi viðkvæmra upplýsinga um einstaklinga sem fengu meðferð við áfengissýki.

„Þetta er hið besta mál,“ segir Þórarinn um rannsóknina sem tveir háskólanemar hyggjast vinna undir handleiðslu og á ábyrgð Vilhjálms Rafnssonar hjá Rannsóknarstofu í heilbrigðisfræði. Nota á sjúkraskrár Vogs frá árinu 1980 og bera saman við dánarmeinaskrá Hagstofunnar.

Þórarinn telur rannsóknina ekki aðeins geta hnykkt á því að líflíkur áfengissjúklinga minnki heldur muni upplýsingarnar gagnast bæði sjúklingunum og heilsugæslunni til að vera á varðbergi. Oft sé tekið á annan hátt á drukknu fólki og þeim sem séu undir áhrifum fíkniefna þegar þeir koma á slysavarðstofuna.

„Vilhjálmur hefur sýnt fram á að lífslíkur þessa fólks eru mjög lágar. Það er í meiri hættu á að deyja á næstu tíu árum heldur en ef það kæmi á bráðamóttöku með alvarlega sjúkdóma,“ segir Þórarinn.

Sjúkraskrár Vogs hafa nú þegar verið notaðar til erfðarannsókna með heimild Persónuverndar að sögn Þórarins. „Það er allt háð ströngum leyfum og við höfum alltaf reynt að fara mjög varlega með þessi gögn hjá okkur,“ segir yfirlæknirinn. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×