Innlent

Lögregla skoðar skróplistann

Mynd/Daníel
Lögreglan á Vestfjörðum er þessa dagana að skoða skróplista þann sem gefinn er út af Skráningarstofu um skoðun ökutækja. Fyrst í stað verða skráningarnúmer fjarlægð af ótryggðum ökutækjum. Þá geta ökumenn sem ekki hafa fært ökutæki sín til hefðbundinnar skoðunar átt á hættu að skráningarnúmer ökutækja þeirra verði fjarlægð án frekari aðvörunar.

Lögreglan fylgist einnig með lagningu ökutækja og hafa nokkrir ökumenn fengið sekt fyrir slík brot. Notkun farsíma og öryggisbelta er líka til skoðunar og mega þeir sem verða staðnir að slíkum brotum eiga von á sekt.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×