Erlent

Hadzic sendur frá Serbíu í gær

Goran Hadzic í fylgd lögreglumanna í Haag.
Goran Hadzic í fylgd lögreglumanna í Haag. nordicphotos/AFP
Goran Hadzic var framseldur í gær frá Serbíu til Alþjóðlega sakadómstólsins í Haag, þar sem hann er ákærður fyrir stríðsglæpi.

Hadzic var handtekinn fyrr í vikunni, síðastur þeirra eftirlýstu stríðsglæpamanna sem verið hafa í felum árum saman eftir þátttöku sína í styrjöldunum á Balkanskaga fyrir hálfum öðrum áratug. Hadzic er meðal annars grunaður um að hafa myrt tvö hundruð króatíska stríðsfanga.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×