Tónlist

Skálmöld klár í Ólympíuleikana

Björgvin Sigurðsson úr Skálmöld og Aðalbjörn Tryggvason úr Sólstöfum eru á leiðinni til Þýskalands. fréttablaðið/valli
Björgvin Sigurðsson úr Skálmöld og Aðalbjörn Tryggvason úr Sólstöfum eru á leiðinni til Þýskalands. fréttablaðið/valli
„Það væri gaman að fá sér eina bratwurst með Ozzy,“ segir Björgvin Sigurðsson, söngvari og gítarleikari Skálmaldar sem spilar á Wacken-hátíðinni í Þýskalandi ásamt Ozzy Osbourne.

Þungarokkssveitin sleppti því að fara í útilegu um verslunarmannahelgina og æfði þess í stað fyrir Wacken sem hefst á fimmtudag og stendur yfir til laugardags. Þar stíga einnig á svið rokkrisar á borð við Ozzy, Judas Priest og Motörhead.

Aðspurður segir Björgvin að Skálmöld sé í fínu formi eftir tónleikaferð um Ísland og Færeyjar með færeysku rokkurunum í Hamferð. „Það var ágætis upphitun og æfingabúðir fyrir Ólympíuleikana í þungarokki,“ segir hann hress.

Plata Skálmaldar, Baldur, er nýkomin út í Evrópu hjá fyrirtækinu Napalm Records. Hún kemur út í Bandaríkjunum í byrjun ágúst. Hún hefur selst í yfir 2.500 eintökum hér á landi ef sala á Tonlist.is er tekin með í reikninginn, sem er framar björtustu vonum.

Dauðarokkararnir í Atrum, sem unnu Wacken Metal-hljómsveitakeppnina hér á landi í vetur, verða einnig á Wacken-hátíðinni. Þar taka þeir þátt fyrir Íslands hönd í úrslitakeppninni. Einnig verða þar þungarokkarnir í Sólstöfum. Þeir verða með hlustunarpartí fyrir blaðamenn vegna nýrrar plötu sinnar, Svartir sandar, sem kemur út í Evrópu og Bandaríkjunum í október á vegum frönsku útgáfunnar Season of Mist. Einnig ætlar helmingur sveitarinnar að róta fyrir Skálmöld á tónleikum þeirra. „Þeir verða á svæðinu og buðu fram aðstoð sína. Það var afskaplega fallega gert hjá þeim,“ segir Björgvin. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.