Innlent

Fréttaskýring: Norðlingaalda og neðri hluti Þjórsár munu valda deilum

Verði af virkjunum í neðri hluta Þjórsár mun vatnsrennslið um Urriðafoss minnka umtalsvert. Virkjanirnar eru á skipulagi en ekki er búið að sækja um framkvæmdaleyfi.fréttablaðið/anton
Verði af virkjunum í neðri hluta Þjórsár mun vatnsrennslið um Urriðafoss minnka umtalsvert. Virkjanirnar eru á skipulagi en ekki er búið að sækja um framkvæmdaleyfi.fréttablaðið/anton
Mun nást sátt um rammaáætlun?

Unnið er að tillögu til þingsályktunar í iðnaðarráðuneytinu um hvernig kostir í rammaáætluninni verða flokkaðir. Um þrjá flokka er að ræða: virkjanakosti, verndunarkosti og biðkosti. Í síðastnefnda flokkinn falla þeir kostir sem ákveða á síðar hvernig verða nýttir; til verndunar eða virkjunar.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að von sé á þingsályktunartillögunni fyrir miðjan þennan mánuð.

Tillagan byggir á áfangaskýrslu verkefnastjórnar um rammaáætlun, en hún kom út 6. júlí. Þar var að finna lista yfir 66 virkjanakosti sem nefndin telur nýtanlega. Það er síðan pólitísk ákvörðun að grisja þá kosti, ákveða hverja eigi að vernda og hverja nýta.

Ljóst er að áherslumunur er á afstöðu stjórnarflokkanna tveggja. Samfylkingin hefur viljað setja fleiri kosti í flokk virkjanlegra, þá sé búið að leggja línurnar til lengri tíma og ljóst sé hvaða kostir verði nýttir í framtíðinni. Katrín hefur einmitt talað fyrir því að með rammaáætluninni náist sátt í þessum málum og deilum um einstaka virkjanakosti fækki. Það sé einfaldlega hluti af stefnumótun hvort virkja eigi á ákveðnu svæði eða ekki. Eitt af skilgreindum hlutverkum áætlunarinnar er að skapa sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða.

Innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboð er það viðhorf hins vegar sterkara að sá tímapunktur að ákveða í eitt skipti fyrir öll hvaða svæði verði virkjuð sé einfaldlega ekki runninn upp. Þar á bæ vilja menn því frekar hafa virkjanlega kosti færri, en fjölga í staðinn þeim sem eru á biðlista. Þar er einnig ríkari vilji til verndunar svæða en innan Samfylkingarinnar.

Þingsályktunin er, líkt og áður segir, á borði iðnaðarráðuneytisins. Efni hennar, það er raunverulegir flokkunarlistar, hafa ekki komið inn á borð þingflokkanna. Ljóst er hins vegar að ráðherrar iðnaðar og umhverfis hafa haft með sér samstarf í málinu.

Þegar tillagan lítur dagsins ljós tekur við sex vikna umsagnarferli. Þar gefst öllum kostur á að tjá sig um efni hennar og koma athugasemdum á framfæri. Miðað við þá miklu gagnrýni sem vinnan við rammaáætlun hefur hlotið, má gera ráð fyrir því að athugasemdir verði fjölmargar.

Það mun velta á því hvernig listi iðnaðarráðherra verður hvort tekst að koma honum í gegnum þingið, eftir að athugasemdafrestur almennings er liðinn.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru það einkum tvö svæði sem standa munu í þingmönnum Vinstri grænna og raunar sumum Samfylkingarmönnum einnig: Þjórsárver og neðri hluti Þjórsár.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherrahefur lýst því yfir að stefnt sé að friðlýsingu Þjórsárvera. Það þýðir að Norðlingaölduveita er ekki lengur uppi á borði, nema að henni verði gjörbreytt. Ekkert liggur fyrir um slíkt á þessari stundu.

Það verður hins vegar þrautin þyngri að sætta andstæð sjónarmið á þingi og ljóst er að fjölmargir stjórnarþingmenn eru andvígir virkjununum í Þjórsá og vilja auka við verndarsvæði áætlunarinnar.

Það verður því pólitískur línudans að sætta þessi sjónarmið og slagurinn mun snúast um Þjórsárverin, og þar með Norðlingaölduveitu, og virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár. kolbeinn@frettabladid.is

svandís svavarsdóttir
URRIÐAFOSSfréttablaðið/anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×