Innlent

Minna foreldra á að gæta sinna

Það á að vera gaman á Menningarnótt en sitthvað getur farið úrskeiðis í mannmergðinni.
Það á að vera gaman á Menningarnótt en sitthvað getur farið úrskeiðis í mannmergðinni.
SAMAN-hópurinn hvetur foreldra til að fylgja börnum sínum og unglingum í bæinn á morgun og minnir jafnframt á að útivistarreglur gilda á Menningarnótt sem venjulegur laugardagur væri.

Segir hópurinn það mikilvægt að foreldrar fylgist vel með því erfiðar aðstæður fyrir börn og unglinga geti auðveldlega skapast í mannmergðinni sem fylgi þessari hátíð. Þá er minnt á til varnaðar að lögreglan hafi í fyrra flutt fjölmarga unglinga í Miðbæjarathvarfið þar sem þeir hafi verið illa á sig komnir vegna ölvunar.- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×