Innlent

Leikskólagjöld hækka í október

Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt 10 prósenta hækkun á leikskólagjöldum fyrir næsta haust.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt 10 prósenta hækkun á leikskólagjöldum fyrir næsta haust.
Gjaldskrá leikskóla Hafnarfjarðar mun hækka um tíu prósent frá og með 1. október næstkomandi. Þetta var samþykkt í fræðsluráði bæjarins í vikunni og er í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfirstandandi ár.

Áður hafði verið samþykkt að hækka verð á hádegismat grunnskólabarna úr 300 krónum upp í 350.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem eru í minnihluta, sátu hjá við afgreiðslu málsins og bókuðu að umræddar hækkanir séu „liður í framkvæmd þeirrar fjárhagsáætlunar sem meirihlutinn í bæjarstjórn stendur að“.

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×