Lífið

Hrifin af besta vini kærasta síns

Hrifin Stacy Keibler er ný kærasta Georges Clooney en er sögð vera hrifnari af vini Clooneys en honum sjálfum.
nordicphotos/getty
Hrifin Stacy Keibler er ný kærasta Georges Clooney en er sögð vera hrifnari af vini Clooneys en honum sjálfum. nordicphotos/getty
Ný kærasta leikarans George Clooney, Stacy Keibler, er sögð hrifnari af besta vini Clooney en honum sjálfum. Vinurinn sem um er rætt mun vera enginn annar en Brad Pitt.

„George er myndarlegur en Stacy finnst Brad myndarlegri. Hún er hrifin af George en menn hafa velt því fyrir sér hvort hún sé aðeins með honum til að komast í tæri við Brad. Hún hefur jafnvel sagt í gríni að um leið og Brad og Angelina Jolie hætta saman muni hún reyna við hann,“ var haft eftir heimildarmanni.

Keibler mun ekki hafa farið leynt með aðdáun sína á Pitt því hún skrifaði eitt sinn á Twitter-síðu sína að það yrði seint leiðigjarnt að horfa á hann alla daga það sem eftir væri.

Keibler er fyrrverandi glímukona og sló í gegn árið 1999 undir nafninu Miss Hancock. Hún og Clooney hafa þekkst í nokkur ár og tóku saman fljótlega eftir að hann sleit sambandi sínu við ítölsku sjónvarpskonuna Elisabettu Canalis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×