Innlent

Hefur flug til Akureyrar 2012

Akureyrarflugvöllur Icelandair mun hefja flug til Akureyrar í júní á næsta ári. fréttablaðið/kristján
Akureyrarflugvöllur Icelandair mun hefja flug til Akureyrar í júní á næsta ári. fréttablaðið/kristján
Icelandair hefur nú ákveðið að fljúga á milli Akureyrar og Keflavíkur í tengslum við millilandaflug sitt. Flogið verður fjórum sinnum í viku, frá byrjun júní til loka september árið 2012.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi segir að þessari ákvörðun sé fagnað og gera megi ráð fyrir að auk þess sem ferðamönnum fjölgi þá lengist dvalartími þeirra á Norðurlandi. Þá er flugið talið bæta möguleika Norðlendinga á beinum samgöngum við útlönd. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×