Innlent

Tugþúsundir e-taflna í farangri 17 ára pilts

Sautján ára íslenskur piltur var tekinn með tösku sem innihélt mikið magn fíkniefna í Leifsstöð aðfaranótt miðvikudags.

Eftir því sem næst verður komist var pilturinn að koma með flugi frá Kaupmannahöfn þegar hann var handtekinn. Hann var einn á ferð. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu efnin í fórum hans við hefðbundið eftirlit og í framhaldi var lögreglan á Suðurnesjum kvödd til.

Pilturinn reyndist hafa í fórum sínum um það bil þrjátíu þúsund e-töflur. Auk þess fundust í farangri piltsins um fimm kíló af duftefni. Rannsókn á efnunum leiddi í ljós að um var að ræða svokölluð íblöndunarefni sem notuð eru til að drýgja fíkniefni, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setti í fyrradag fram kröfu um gæsluvarðhald yfir piltinum. Dómari Héraðsdóms Suðurnesja tók sér frest til hádegis í gær til að taka ákvörðun í málinu. Um hádegisbil í gær úrskurðaði hann síðan að pilturinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 7. september næstkomandi.

Pilturinn hefur ekki komist í kast við lögin áður, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Hann verður vistaður í gæslu á Litla-Hrauni, en slíkt hefur verið gert áður þótt meintur brotamaður sé ekki orðinn átján ára. Málið er í rannsókn hjá lögeglunni á Suðurnesjum.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×