
Mannréttindi fyrir alla?
Það getur verið gagnlegt að skoða tölur og aðstæður í einu meðalstóru sveitarfélagi þar sem tiltölulega auðvelt er að hafa yfirsýn til þess að glöggva sig á stöðu mála.
Atvinnuleysi útbreiddara meðal innflytjendaÁ Akranesi búa nú 389 íbúar af erlendum uppruna, 6% af íbúafjölda bæjarins. Þar á meðal eru 56 börn á leik- og grunnskólalaldri og hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað mikið undanfarin þrjú til fjögur ár. Þegar þetta er ritað eru 255 manns á Akranesi án atvinnu, þar af 43 innflytjendur. 26 konur og 17 karlar, sem eru tæp 17% einstaklinga án atvinnu í bænum á meðan atvinnuleysi mælist í heildina um 8%.
Undanfarin tvö ár hafa félagsþjónustan á Akranesi og Rauði krossinn á Akranesi orðið vör við vaxandi vanda innflytjendafjölskyldna. Fátækt og atvinnuleysi er útbreiddara meðal innflytjenda en innfæddra og þvert á það sem margir áttu von á hefur innflytjendum ekki fækkað að neinu marki síðan kreppan skall á. Hér hefur erlent launafólk unnið sér inn réttindi og þegar litið er til þess að atvinnuástand í heimalandinu er oft mjög slæmt er eðlilegt að fólk ákveði að dvelja áfram á Íslandi og nýta sér áunnin réttindi. Við þetta bætist svo að margir innflytjendur eru hér í eignarfjötrum og komast hvergi þótt þeir vildu vegna þess að þeir eiga hér eignir sem ekki hefur tekist að selja.
SkuggaskýrslaÁ Akranesi hefur fjöldi innflytjenda nánast haldist óbreyttur en samsetning hópsins hefur breyst, einhleypir verkamenn hafa í nokkrum mæli leitað á önnur mið en fjölskyldumenn sem áður sáu fyrir fjölskyldum sínum í heimalandinu hafa nú fengið konur sínar og börn til Íslands. Það er reynsla þeirra sem sinna fjölskyldum á Akranesi, s.s. félagsráðgjafa og skólastjórnenda, að vísbendingar séu á lofti um að rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af aðstæðum hluta þessara barna. Skuggaskýrsla sem Barnaheill, Mannréttindaskrifstofa Íslands og UNICEF kynntu fyrir nokkum vikum renna enn styrkari stoðum undir þetta og sama gildir um skýrslu Rauða kross Íslands, Hvar þrengir að? sem kynnt var á vormánuðum 2010. Þá er brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsnámi áhyggjuefni, en af 21 nemanda sem hófu nám á haustönn 2010 í Fjölbrautaskóla Vesturlands hættu 6 námi áður en haustönn lauk og einn hefur hætt námi á vorönn. Brottfall nemenda af erlendum uppruna á síðasta námsári var því ríflega 30%, sem hlýtur að teljast óásættanlegt, ekki síst þegar litið er til þess að það sem tekur við nemendum sem hætta námi er atvinnuleysi. Einnig eru vísbendingar á lofti um að hluti þeirra kvenna af erlendum uppruna sem eru án atvinnu og án tengslanets búi við mjög bágar aðstæður, fátækt, einsemd og einangrun og skerta möguleika til þess að bæta aðstæður sínar.
Með Rauða krossinum á Akranesi starfa ríflega eitt hundrað sjálfboðaliðar af erlendum uppruna að fjölbreyttum verkefnum. Þeir hafa margir deilt með okkur þeirri upplifun sinni að aðgengi að þjónustu og upplýsingum hafi minnkað og lífsbaráttan í þessu annars góða landi harðnað verulega fyrir fólk af erlendum uppruna. Forsenda þess að njóta þeirra mannréttinda sem íbúum á Íslandi eru tryggð í mannréttindasáttmálum og stjórnarskrá er að tryggja gott aðgengi að upplýsingum og þjónustu og að stjórnvöld geri sitt ítrasta til þess að jafnrétti sé ástundað í reynd. Því er þessi þróun verulegt áhyggjuefni.
Skoðun

Leiðréttingar á staðhæfingum um mjólkurmarkaðinn og tollflokkun
Erna Bjarnadóttir skrifar

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Ragnheiður Gröndal,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir skrifar

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar