Innlent

Augu Meyjunnar stara í tómið

Augun mín og augun þín Vetrarbrautirnar minna óneitanlega á augu á þessari mynd, sem er hluti af átaki ESO til að kynna vísindi fyrir almenningi. 
Mynd/ESO
Augun mín og augun þín Vetrarbrautirnar minna óneitanlega á augu á þessari mynd, sem er hluti af átaki ESO til að kynna vísindi fyrir almenningi. Mynd/ESO
Kíkir Stjörnustöðvar Evrópulanda á Suðurhveli (ESO) náði á dögunum einstaklega glæsilegri mynd af tveimur vetrarbrautum í órafjarlægð frá jörðu.

Vetrarbrautirnar eru jafnan kallaðar Augun og eru í 50 milljóna ljósára fjarlægð frá stjörnumerkinu Meyjunni.

Viðurnefnið er skiljanlegt þar sem þær minna óneitanlega á augu. Allt tal um vegalengdir er þó afstætt því að milli þeirra eru um 100 þúsund ljósár.

Talið er líklegt að einhvern tíma í fyrndinni hafi vetrarbrautirnar rekist saman. Vegna þess er rykský í kringum vetrarbrautina sem er ofar á myndinni. Það sama gæti hent okkar vetrarbraut og Andrómedu, sem liggur okkur næst.

Ekkert er þó að óttast enn um sinn þar sem það verður ekki fyrr en eftir um 3 til 4 milljarða ára.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×