Innlent

Heildarkostnaður um 40 milljarðar króna

Lóð Nýs Landspítala verður vel tengd við stígakerfi Reykjavíkur og almenningssamgöngur. Áhersla verður lögð á að efla sjálfbæran samgöngumáta í nágrenni spítalans.mynd/nlsh
Lóð Nýs Landspítala verður vel tengd við stígakerfi Reykjavíkur og almenningssamgöngur. Áhersla verður lögð á að efla sjálfbæran samgöngumáta í nágrenni spítalans.mynd/nlsh
Drög að deiliskipulagi nýs Landspítala voru kynnt í gær. Vonir standa til að skipulagið öðlist gildi með vorinu. Drögin eru grundvölluð á tillögu hönnunar-hópsins SPITAL, sem bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppninni árið 2010.

Gunnar Svavarsson, formaður byggingarnefndar nýs Landspítala, segir áætlaðan kostnað við bygginguna vera um 40 milljarða króna.

„Lífeyrissjóðirnir munu fjármagna þetta að fullu,“ segir Gunnar. „Ríkið eignast spítalann á 30 til 40 árum og kaupir þetta á hrakvirði til baka.“ Happdrætti Háskólans fjármagnar heilbrigðisvísindasvið Háskólans sem er um 10 prósent af heildinni, að sögn Gunnars. Það gerir á bilinu þrjá til fjóra milljarða króna.

Starfsemi Landspítalans fer nú fram á 17 stöðum í nærri 100 húsum. Ætlunin með nýja spítalanum er meðal annars að sameina alla bráðastarfsemi sem rekin er við Hringbraut og í Fossvogi. Nýja byggðin á að rísa að mestu á suðurhluta lóðarinnar og innihalda meðal annars meðferðar- og bráðakjarna, sjúkrahótel og húsnæði heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Deiliskipulagssvæðið er í heild um 15 hektarar og afmarkast af umferðargötum á alla vegu. Byggingarmagn á Landspítalalóðinni er nú ríflega 76 þúsund fermetrar og í fyrsta áfanga, sem á að vera lokið árið 2017, er miðað við 95 þúsund fermetra í nýbyggingum.

„Byggingar Landspítala eru gamlar og henta illa nútímalegum sjúkrahúsrekstri,“ er haft eftir Björn Zoëga í tilkynningu frá Landspítalanum. „Sameining á einn stað og sveigjanleiki nýbygginga í breytilegu umhverfi spítala í stöðugri framþróun mun stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri Landspítala.“

Á næstu dögum mun forkynning á drögum að deiliskipulagi standa yfir. Veggspjöld með uppdráttum og þrívíddarmyndum verða til sýnis í Háskóla Íslands og verða sérfræðingar á staðnum til að svara fyrirspurnum almennings. Einnig verða upplýsingar aðgengilegar á heimasíðunni www.nyrlandspitali.is og www.reykjavik.is frá 1. september til 1. október næstkomandi. sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×