Innlent

Dópuð móðir með barn í bíl

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Kona á þrítugsaldri var nýverið stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu. Hún var í annarlegu ástandi. Í fórum hennar fundust fíkniefni. Með í för var barnið hennar og var barnaverndaryfirvöldum gert viðvart. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð en hún hafði þegar verið svipt ökuleyfi.

Allmargir ökuþórar voru teknir fyrir hraðakstur um nýliðna helgi. Grófasta brotið framdi karl á sextugsaldri sem ók Suðurlandsveg á 155 kílómetra hraða.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×