Lífið

Marín Manda komin heim og selur skó á netinu

Marín Möndu Magnúsdóttur líkar vel að vera komin heim og ætlar að sjá kaupglöðum Íslendingum fyrir skóm gegnum netið.
Marín Möndu Magnúsdóttur líkar vel að vera komin heim og ætlar að sjá kaupglöðum Íslendingum fyrir skóm gegnum netið. Fréttablaðið/Valli
„Þetta var í raun grín sem varð að veruleika," segir Marín Manda Magnúsdóttir, sem er komin með annan fótinn til Íslands eftir tíu ára búsetu í Danmörku. Ástæðan er vinnutilboð sem hún gat ekki hafnað.

„Ég hitti gamla starfsfélaga fyrir tilviljun þegar ég var heima í fríi í vor og þeir spurðu mig hvort ég væri ekkert á leiðinni heim. Ég svaraði í gríni: ef þú ert með góða vinnu fyrir mig kem ég heim á morgun," segir Marín Manda hlæjandi en hún fékk símtal strax daginn eftir þar sem henni bauðst að verða framkvæmdastjóri vefverslunarinnar Skor.is. Verslunin verður opnuð í september og kemur Marín Manda að innkaupum og sér um rekstur verslunarinnar sem hún segir vera sérsniðna að nútíma Íslendingnum.

„Þetta er mjög spennandi verkefni enda verður verslunin sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Það verður fjölbreytt úrval af skóm, stöðugar nýjungar og frí heimsending svo eitthvað sé nefnt," segir Marín Manda en hún hefur dágóða reynslu í verslunarmennsku.

Hún rak sína eigin barnafataverslun í Kaupmannahöfn við góðan orðstír og lærði fatahönnun úti. „Að reka mitt eigið fyrirtæki var tvímælalaust besti skóli sem ég gat fengið en þetta verkefni er það stærsta sem ég hef tekið að mér. Það er mjög gaman að takast á við eitthvað nýtt."

Marín Manda skildi við danskan barnsföður sinn í byrjun árs en þau eiga tvö börn saman. „Það að ég sé að vinna á Íslandi er púsluspil enn sem komið er en við erum mjög góðir vinir og finnum út úr því," segir hún og bætir við: „Ég er eiginlega of dönsk til að vera íslensk og öfugt. Danirnir kenndu mér að vera jarðbundnari og kunna að meta einkalífið. Ég er hins vegar ennþá íslenski vinnualkinn og hef gaman af því."

alfrun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.