Innlent

Ánægjuleg þróun

Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon
„Það er mjög ánægjulegt að þessi þróun heldur áfram, heildarendurheimtuhorfurnar batna og fé kemur hraðar inn þannig að handbært fé er orðið umtalsvert," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans.

„Icesave-málinu væri í sjálfu sér lokið ef seinni samningurinn hefði verið staðfestur og allar líkur á því að við hefðum komist frá án kostnaðar," segir Steingrímur.

Hann segir nú allar líkur á því að endurheimtuhlutfallið verði 100 prósent og útgreiðslur verði hraðari, sem sé jákvætt í öllu tilliti.

„Vonandi hjálpar þetta til hvernig sem málinu reiðir af."

- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×