Erlent

Uppreisnarmenn sækja fram

Ónefndur listamaður hefur málað mynd af Gaddafí á húsvegg í Trípólí. Á myndinni má sjá einræðisherrann fyrrverandi forða sér á hlaupum með peninga í poka.nordicphotos/AFP
Ónefndur listamaður hefur málað mynd af Gaddafí á húsvegg í Trípólí. Á myndinni má sjá einræðisherrann fyrrverandi forða sér á hlaupum með peninga í poka.nordicphotos/AFP
Uppreisnarhreyfingin í Líbíu, sem nú hefur að mestu náð völdum í landinu, bjó sig í gær undir innrás í Sirte, heimabæ Múammars Gaddafí.

Uppreisnarmenn höfðu gefið stuðningsmönnum Gaddafís í Sirte frest þangað til í dag til að semja um uppgjöf en lítil sem engin viðbrögð fengið önnur en fullyrðingar Gaddafís um að hart yrði tekið á móti.

Leiðtogar bráðabirgðastjórnar uppreisnarmanna í Líbíu hafa ekki kynnt opinberlega neinar skýrar hugmyndir um framtíð landsins en ræddu þó áform sín við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðastofnana á lokuðum fundi í París í gær, daginn eftir að þeir ræddu við leiðtoga sextíu ríkja um stuðning við uppbyggingu í landinu.

Þeir hafa lofað lýðræðislegum kosningum, sumir segja innan tuttugu mánaða, og fulltrúi þeirra í Bretlandi lofar að engin fyrirtæki fái sérmeðferð þegar kemur að því að semja um olíuvinnslu í nýrri Líbíu.

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa síðustu daga snúið aftur til höfuðborgarinnar Trípolí, þar sem matvælum, vatni og lyfjum verður dreift til íbúa.

Aðstoð Sameinuðu þjóðanna verður þó aðeins tímabundin, segir Panos Moumtzis, yfirmaður mannúðarstarfs Sameinuðu þjóðanna í Líbíu.

„Þetta land á mikið af auðlindum og við teljum þörfina á mannúðaraðstoð vera til skamms tíma,“ segir hann og vísar til olíuauðsins sem þessi sex milljón manna þjóð hefur yfir að ráða. „Ég sé ekki fram á að mannúðaraðstoð verði haldið áfram lengur en til áramóta, í mesta lagi.“

Gaddafí hefur verið í felum frá því uppreisnarmenn réðust inn í Trípolí 20. ágúst og náðu borginni á vald sitt á fáeinum dögum.

Ýmsar getgátur hafa verið um hvar hann kunni að vera niðurkominn, en í útvarpsviðtali á fimmtudagskvöld sakaði hann NATO-ríkin um að vilja hernema Líbíu til að komast yfir olíuauðlindirnar.

„Búið ykkur undir langt stríð,“ sagði hann. „Búið ykkur undir skæruhernað.“

Auk borgarinnar Sirte búa uppreisnarmenn sig undir innrás í tvær aðrar borgir, Bani Walid og Sabha, sem stuðningsmenn Gaddafís hafa enn á valdi sínu. gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×