Innlent

Sendi 100 dali í þakkarskyni

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Bandarískur ferðamaður sem björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ bjargaði úr sjálfheldu snemma í ágúst sendi sveitinni þakkarbréf frá Bandaríkjun-um, og lét fylgja með ávísun að andvirði 100 Bandaríkjadala, sem jafngildir um 11.500 krónum.

Í þakkarbréfinu harmar ferðamaðurinn að hafa ekki getað þakkað björgunarmönnum sínum persónulega þar sem hann þurfti að halda áfram för sinni með samferðamönnum sínum eftir björgunina. Hann sendi því ávísunina til að styrkja sjálfboðaliðastarf björgunarsveitanna.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×