Samstarf

Fjölbreytileg tæki

Einar Farestveit & Co. hf. leggur áherslu á vönduð vörumerki í eldunartækjum, að sögn verslunarstjórans Þráins Bj. Farestveit.
Einar Farestveit & Co. hf. leggur áherslu á vönduð vörumerki í eldunartækjum, að sögn verslunarstjórans Þráins Bj. Farestveit. Mynd/Pjetur
Fyrirtækið Einar Farestveit & Co. hf. hefur fyrir löngu skapað sér nafn hérlendis fyrir sölu á vönduðum eldunartækjum. Verslunarstjórinn Þráinn Bj. Farestveit er öllum hnútum kunnugur um nýjungar þess.

Þráinn upplýsir að hjá Einari Farestveit & Co. hf. séu fjögur vörumerki í öndvegi í eldunartækjum. Nefnir hann fyrst til sögunnar Blomberg. „Óhætt er að segja að Blomberg sé stórtækt í öllu sem það tekur sér fyrir hendur, því það býður upp á breiða línu af ofnum, allt frá hálf- og upp í alsjálfvirka ofna, og ofna þar sem við erum að tala um allt að 65 lítra ofnrými en yfirleitt eru ofnar í kringum 53 lítra," bendir hann á og bætir við að Blomberg þekki flestir enda hefur merkið fyrir löngu náð fótfestu hérlendis.

De Dietrich er að sögn Þráins stórt vörumerki frá Frakklandi sem hefur náð miklum vinsældum á Íslandi enda bjóði það upp á eina fullkomnustu ofna sem völ er á. „Sumir eru búnir alsjálfvirkum hreinsi- og matreiðslukerfum og sértækum tölvustillingum. Sem dæmi er hægt að stilla ofn sérstaklega á roastbeef og hann skilar kjötinu fullelduðu án þess að kokkurinn þurfi að grípa inn í eldamennskuna."

Þá segir Þráinn De Dietrich framleiða smáofna sem eru ekki nema 2/3 af hefðbundinni stærð og eru nokkuð eftirsóttir. „Þar eru hagkvæmnissjónarmið höfð í fyrirrúmi og gott dæmi um slíkt eru ofnar sem sameina eiginleika hefðbundinna ofna og örbylgjuofna."

Þráinn segir þó fáa standast bandaríska fyrirtækinu KitchenAid snúning hvað glæsileika varðar í ofnum, helluborðum og háfum. „Allt sem frá því kemur er vandað og flott og stálið sem er notað er sérstakt nanóstál, sem er kámfrítt."

Einnig nefnir hann ítalska framleiðandann Candy sem framleiðir einfalda og vandaða ofna og helluborð. „Þeir eru búnir öllum nauðsynlegum eiginleikum, góðri blástursviftu, undir- og yfirhita og grilli."

Loks lætur Þráinn þess getið að litlir og stórir ofnar, háfar, gashellu- og spansuðuhelluboð séu meðal þess sem bjóðist frá öllum framleiðendum, sem fyrirtækið er umboðsaðili fyrir. Sjón er sögu ríkari."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×