Innlent

Fékk gull fyrir góðan árangur

Íslenska auglýsingaherferðin Inspired by Iceland fékk í gær gullverðlaun á EFFIE-auglýsingahátíðinni fyrir besta árangur evrópskrar auglýsingaherferðar sem byggði á notkun samfélagsmiðla.

„Þetta er stórkostlegur árangur,“ segir Kristján Schram, markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni, sem vann að herferðinni. „Þetta eru stærstu verðlaun sem íslensk auglýsingaherferð hefur fengið.“

Til að fá hin virtu EFFIE-verðlaun þarf að sýna fram á mælanlegan árangur af auglýsingaherferðum, og þótti árangur Inspired by Iceland skara fram úr þetta árið. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×