Erlent

Atvinnuleysið minna en í fyrra

Frá Stokkhólmi Atvinnuleysi í Svíþjóð mældist 6,6 prósent í ágúst, sem er minna en óttast var.NordicPhotos/Getty
Frá Stokkhólmi Atvinnuleysi í Svíþjóð mældist 6,6 prósent í ágúst, sem er minna en óttast var.NordicPhotos/Getty
Atvinnuleysi í Svíþjóð mældist 6,6 prósent í ágúst, sem er nokkru minna en búist hafði verið við.

Í opinberum hagtölum frá Svíþjóð segir að í ágúst í fyrra hafi atvinnuleysi mælst 7,4 prósent og höfðu hagfræðingar gert ráð fyrir að hlutfallið í ár yrði 6,8 prósent.

Alls voru 336 þúsund manns án atvinnu í Svíþjóð í síðasta mánuði, en atvinnuleysi dróst mun meira saman hjá konum en körlum. Heildarvinnustundum á sænska vinnumarkaðinum fjölgaði um þrjú prósent milli ára.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×