Innlent

Heilsustofnun starfi áfram

Guðbjartur Hannesson
Guðbjartur Hannesson
Ekki kemur annað til greina en að Heilsustofnunin í Hveragerði starfi áfram eftir áramót, sagði Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær.

Hann sagði það ósæmandi hegðun hjá forsvarsmönnum stofnunarinnar að segja upp starfsmönnum frá og með áramótum þar sem enn hafi ekki tekist að semja við ríkið um framlög. Guðbjartur sagði hugsanlegt að skýra þurfi línur varðandi verkefni stofnunarinnar, og að framlög til hennar skerðist um sama hlutfall og önnur útgjöld til heilbrigðismála. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×