Innlent

Fleiri um göngin en Óshlíðina

Bolungarvíkurgöng Svipað margir fara um göngin á virkum dögum og fóru um Óshlíðina. fréttablaðið/stefán
Bolungarvíkurgöng Svipað margir fara um göngin á virkum dögum og fóru um Óshlíðina. fréttablaðið/stefán
828 bílar hafa farið um Bolungarvíkurgöngin hvern dag á þessu ári að meðaltali. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Umferðin um göngin er tveimur prósentum meiri en um Óshlíðarveg á sama tímabili í fyrra, áður en göngin voru opnuð.

Umferðin dróst lítillega saman á virkum dögum milli ára, um 0,2 prósent. Hún jókst hins vegar um níu prósent um helgar. Það telur Vegagerðin glöggt merki um að atvinnutengd umferð standi í stað en umferð í einkaerindum og umferð ferðamanna fari vaxandi. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×