Innlent

Réðst á sambýliskonu sína

Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás.

Manninum er gefið að sök að hafa ráðist á þáverandi sambýliskonu sína á heimili þeirra á Akureyri, gripið í föt hennar, ýtt henni upp að vegg og slegið hana í andlitið þannig að hún féll í gólfið og síðan sparkað í hana. Atvikið átti sér stað í febrúar.

Konan slasaðist, hlaut mar og bólgu á kinnbeini og æð sprakk í auga. Hún krefst hálfrar milljónar í miskabætur. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×