Lífið

Shiloh Pitt sögð skotin

Angelina Jolie er sögð vera að reyna að koma dóttur sinni saman við son Gwen Stefani.
nordicphotos/getty
Angelina Jolie er sögð vera að reyna að koma dóttur sinni saman við son Gwen Stefani. nordicphotos/getty
Ástalíf Angelinu Jolie hefur lengi verið fjölmiðlamatur en nú eru bandarískir fjölmiðlar farnir að beina sjónum sínum að Jolie-Pitt börnunum. In Touch heldur því fram að ástin blómstri milli Shiloh Jolie-Pitt og Kingstons Rossdale, sonar Gwen Stefani, en börnin eru bæði fimm ára gömul.

Tímaritið heldur því fram að mæðurnar séu sáttar við ráðahaginn og ýti jafnvel undir hann með því að skipuleggja leikdaga með börnum sínum. „Shiloh og Kingston finnst gaman að leika sér saman, þau horfa á sömu bíómyndirnar og finnst gaman að klæða sig upp í búninga. Þau eru það góðir vinir að þegar þau eru ekki í sömu borg heimta þau að fá að tala við hvort annað í gegnum Skype-forritið,“ hafði tímaritið eftir heimildarmanni sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×