Innlent

Nagladekk óþörf

Samgöngustjóri Reykjavíkur segir nagladekk óþörf í Reykjavík. „Þegar götur eru ruddar að vetrarlagi, það er ís- og snjólausar, eru venjuleg vetrardekk öruggari en negld dekk ef eitthvað er. Þetta sýnir rannsókn á vegum sænsku Samgöngustofnunarinnar.

Við hreinsum göturnar vel í Reykjavík og þess vegna auglýsum við að nagladekk séu óþörf í borginni,“ segir Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri borgarinnar. Fréttablaðið vitnaði í gær í aðra sænska rannsókn sem sýndi fram á gagnsemi nagladekkja.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×