Viðskipti innlent

Á stór rekstrarfélög

Arion banki, eða dótturfélagið Eignabjarg, á hlut í 37 félögum. Þar eru 12 rekstrarfélög en hin eru eignarhaldsfélög sem eru ekki í samkeppnisrekstri. Þar af á bankinn 100% hlut í þremur: Pennanum, Fram Foods og Sigurplasti. Bankinn stefnir á að þau verði öll seld á fyrri helmingi næsta árs. Þá á Arion rúmlega helmingshlut í smásölurisanum Högum.

Til stendur að selja 20-30% hlut í Högum í gegnum Kauphöllina í byrjun desember. Arion hefur þegar selt 39% hlut sinn í N1 og allt hlutafé í BM Vallá en Samkeppnisyfirvöld hafa enn ekki gefið samþykki sitt fyrir sölunni. Því eru þeir eignarhlutir enn skráðir í eigu bankans.

Bankinn er síðan minnihlutaeigandi að sex rekstarfélögum. Þau eru Ölgerðin Egill Skallagrímsson (20%), Sementsverksmiðjan (23,6%), Farice (43,47%), Lagerinn Dutch Holding (10%), Borgarverk (15%) og Hótel Borgarnes (20,6%). Í þessum félögum telur bankinn sig vera háðan samkomulagi við meirihlutaeigendur þeirra ef hann ætlar að selja hlut sinn.

Þá á Arion banki 45% hlut í Klakka, sem hét áður Exista, og var eitt stærsta fjárfestingafélag landsins fyrir bankahrun. Klakki á nokkur af stærstu rekstrarfélögum á Íslandi. Þau eru Skipti (Móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins), VÍS, Lífís og Lýsing hf. Arion á líka 16,4% hlut í Stoðum, sem áður hétu FL Group. Stoðir eiga 99,1% af öllu hlutafé Í TM og 40% hlut í Refresco.

Bankinn á líka 42,65% hlut í fasteignafélaginu Reitum, sem áður hét Landic Properties. Til stendur að skrá það félag í Kauphöll á næsta ári. Auk þess á Arion 100% hlut í fasteignafélögunum Landfestum og Landeyjum.

Við þetta bætist að bankinn þarf að taka aftur yfir rekstur svínabúa að Brautarmel og Hýrumel í Borgarfirði eftir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ógildingu á yfirtöku Stjörnugríss á þeim.

Arion hefur þegar yfirtekið, og selt, ÍAV, 10-11, Heklu, Klett og 70% hlut í Hótel Hamri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×